Helstu verkefni og ábyrgð
• Stefnumótun, markaðssetning og uppbygging vörumerkja á íslenskum markaði.
• Gerð og innleiðing markaðsáætlana.
• Skipulagning og framkvæmd markaðsherferða, viðburða og söluhvetjandi aðgerða.
• Vörustjórnun, þróun og hagræðing vöruúrvals ásamt innleiðingu nýrra vara.
• Eftirspurnarspár, birgðastýring og eftirfylgni með vöruframboði í samstarfi við viðeigandi deildir.
• Greining á sölu, markaðshlutdeild, neytendahegðun og þróun markaðar.
• Eftirfylgni með sölu, arðsemi og lykilárangursmælikvörðum vörumerkja.
• Kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð ásamt eftirfylgni með markaðsfjárfestingum.
• Uppbygging og viðhald öflugra samstarfssambanda við erlenda birgja og aðra samstarfsaðila.
• Greining og þróun nýrra viðskiptatækifæra. Hæfnis- og menntunarkröfur
• Háskólamenntun í markaðsfræði,
viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af markaðsmálum, vörumerkjastjórnun, vörustjórnun eða sambærilegum verkefnum.
• Góður viðskiptaskilningur og áhugi á rekstri, sölu og markaðsmálum.
• Sterk greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við ákvarðanatöku.
• Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með ólíkum hagsmunaaðilum að sameiginlegum markmiðum.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og áreiðanleiki.
• Drifkraftur, frumkvæði og jákvæðni.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
• Góð tölvukunnátta, færni í Excel og hæfni til að tileinka sér ný kerfi og tæknilausnir.
• Reynsla af neytendamarkaði er kostur.